Ég er komin með æluna yfir ælunni og æli bara og æli...
Nei í alvöru, þetta er orðið voðalega þreytandi.. var gegt happy
í gær því ég átti klippingartíma núna í dag, loksins að fara gera
eitthvað í þessu zombie looki mínu.. en nei.. byrja að æla og var
hálftíma of sein í tímann minn.. missti semsagt af honum, það var
bara búið að stroka mig út.. og þá byrjuðu hormónarnir að
stríða mér.. ég fór næstum að gráta en náði að halda því í
skefjum..
Ég er nú ekki þekkt sem vælari! En í dag get ég
grenjað yfir öllu...
Þá er ég búin að hugsa hvort ég skreppi bara ekki í svona
brúnkusprautun... má það? ég veit það ekki..
og ef það má þá er
ég með annað vandamál.. á mar bara að standa þarna hálfnakin og
einhver gella sprautar á mann..?
Ég fór á hestamót í gær til að styðja hana systur mína.. Lýdíu
snilling áfram.. ég var skjálfandi klappstýra með frosinn rass og
tær þegar hún burstaði þetta bara.. þetta var ógisslega flott hjá
henni og Lýdía.. PRINS ER GEGGJAÐUR
Til hamingju dúllan mín,
þú ert langflottust!!
Þá fór ég bara heim til mömmu og pabba til að horfa á úrslitin í
Idolinu.. bara á stöð2+ og borða pizzu..
Gústi kallinn var á
skrallinu einhverstaðar upp í sveit.. í mosfellsdalnum.. eða
eitthvað shitt.. Ég var byrjuð að dotta eitthvað yfir þessu
Idoli þannig ég ákvað að drífa mig heim og keyrði eins og ég væri
dauðadrukkin alla leið að berjast við augun á mér sem vildu
óstjórnlega lokast.. Beint uppí rúm þegar þangað var komið.. og
vaknaði svo bara alein.. þá var gústi búinn að koma heim og fara í
vinnuna... og þá byrjaði það.. út um nebban og allt.. ojj barasta
helv.. morgunkjaftæði!!
kv. Diljá